Maí

Ég ákvað að láta verða af því og gerast dreifingaraðili fyrir herbalife... verður gaman að sjá hvað kemur útúr því öllu saman.

Apríl!

Greinilega eitthvað lítið um tjáningarþörf undanfarinn mánuðinn... sjáum til hvort eitthvað verði hægt að breyta því.

Þriðjudagur

mig langaði bara að kúra  lengur í rúminu mínu þegar ég vaknaði, hefði mátt sofa aðeins lengur en miðað við allt sem ég þarf að gera þessa dagana gengur mér ekki nógu vel að fara snemma að sofa.

Tókst að fara fíluferð uppá skaga í gær af því að það frestaðist það sem fram átti þar að fara... þannig tveir tímar fóru í keyrslu, en það róaði mig og tjúnaði mig upp sitthvora áttina. Svo þegar ég kom heim aftur fór ég í að elda mat og svo náði ég að klára verkefni fyrir daginn í dag, sem ég var að í huga að sleppa því mig langaði beint uppí rúm þegar ég kom heim.

þegar ég vaknaði í morgun eldaði ég meira því ég þurfti víst eitthvað nesti með mér í skólann, ákvað svo að taka tölvuna með mér í dag... í fyrsta skiptið á þessari önn svona miðað við að ég nenni ekki að burðast með hana, en ég fer í ágætis gat í dag þannig ég er að spá í að nota eitthvað af því til að vinna aðeins meira í verkefninu mínu svo ég klári það einhvern tímann í nánustu framtíð.

annars þyrfti ég að ná að klára að lesa egilssögu, eða það sem þarf að lesa fyrir fimmtudaginn þegar það verður krossapróf... þarf að vera búin með 50bls í dag, annars er ég bara búin með í kringum 20, og aðal vandamálið er kannski að ná skilningnum upp... ef ég verð heavy dugleg þá sleppi ég því að sofa og lesa hana nokkrum sinnum fyrir prófið... sjáum hvernig gengur með það.

jæja best að henda sér í lesturinn (hraðlestrarnámskeiðið er heavy að borga sig upp þessa dagana)


Mánudagur

og mars sem betur fer hálfnaður! Skrítið veður búið að vera um helgina... en ég gerði lítið nema sofa annan daginn og hinn daginn var ég ógeðslega dugleg að klára verkefni sem ég var með á lista sem ég var að fara eftir... hreinsaði útúr tölvunni, kláraði heimavinnu og allskonar húsverk og svo passaði ég í gærkvöldi líka.

dagurinn í dag hefur verið frekar weird og ég veit ekki af hverju, byrjaði ágætlega með því að ég fékk að sofa "auka" klukkutíma, komst nógu snemma út miðað við að ég var búin að taka allt til svo ég væri ekki að eyða tíma í það áður en ég þyrfti að fara í skólann og vera hlaupandi út, samt sem áður lenti ég í HEAVY umferðarhnút milli mjóddarinnar og pizza hut ... ég hélt það væri eitthvað svaka umferðarslys því einn lögreglubíll var á svæðinu, þegar ég kom að ljósunum kom svona kranabíll... og þá bjóst maður við að það væru svona tveir þrír bílar í slysi eða eitthvað en neinei, þá var það ein kona á bíl og löggan greinilega að hirða af henni bílinn af einhverjum ástæðum.... ég get ekki neitað því að um mig fór einhver pirringur, fyrir utan að ég var að verða of sein í skólann, merkilegt hvað ein manneskja getur haft áhrif á marga því það voru nú ansi margir í þessari umferðarteppu... anyways þá komst ég í skólann á réttum tíma.

Eftir skólann þurfti ég að fara í blóðprufu á spítalann og þegar ég kom þangað þá fattaði ég það að ég hafði gleymt blaði sem ég þurfti og ég tjúnaðist eitthvað upp þegar ég fór heim að ná í það að ég hef verið í nokkra klukkutíma að ná mér niður aftur, anyways þá þurfti ég að fara heim og ná í blaðið og svo fór ég í ræktina og tók lyftingar... aðeins og mikið af fólki þar fyrir minn smekk og ég náði ekki alveg að taka æfinguna sem ég ætlaði mér vegna orkuleysis...

er búin að vera heima akkúrat núna í alveg hálftíma... og er að fara aftur út ... jæja hef ekki meiri tíma í þetta í bili...

annars komst ég að því að ég var hæðst í íslensku með 9.5 á lokaprófinu sem ég tók um daginn... laglegt það!  (dugleg!)


viku síðar

hef ekkert verið að gefa mér tíma til að blogga þótt ansi oft hef ég verið að hugsa um að tjá mig eitthvað en ekki látið verða af því. 

Mánudagurinn og þriðjudagurinn voru skemmtilega góðir, annað kvöldið fór í að fara upp á skaga og hitt kvöldið fór í danstíma

Miðvikudagskvöldið tókst mér að vera heima og sauma aðeins og styttist í að saumaverkefnið mitt klárist og næsta geti hafist.

Fimmtudagskvöldið fór í tvo fyrirlestra, andlega og líkamlega hliðin getum við sagt

föstudagurinn fór í mat með familíunni og að klára ýmis verkefni heima við, hætti við að fara á ball sem átti að vera og miðað við veður hefði ekki borgað sig að fara á nornakvöldið sem var í kvöld.

annars er búin að vera slatti að gera í skólanum, fékk 10 fyrir skýrslu í náttúrufræði og 10 fyrir verkefni sem ég þurfti að gera á náttúrufræðistofnun kópavogs, en mér tókst að þurfa að fara þangað tvisvar sinnum.

Fór annars uppá skaga seinustu helgi og tók ansi flottar myndir af tunglinu, en missti af ansi góðum kodac momentum af tunglinu þegar ég fór á mánudagskvöldið... vegna þess það var svo gott veður þá var það ansi fallegt en ég tók ekki myndavélina með.   Ef það er fullt tungl núna þá sést það ekki mikið miðað við snjóbylinn sem er þarna út, annars er þetta bara svona kúruveður!

Þrátt fyrir að hafa slatta að gera í skólanum, hin ýmsu verkefni og fara í próf og lesa endalaust af efni þá tekst mér samt að fara á bókasafnið og bæta á mig fleiri bókum sem mig langar að lesa og virðist einhvern veginn komast yfir þær einhvern veginn, t.d. las ég þrjár bækur í byrjun vikunnar, renndi fljótlega yfir þær í staðinn fyrir að lesa hvert einasta orð, gríp það sem ég þarf úr þeim greinilega og læt svo rest vera. Annars með þessa þykku sem ég fann um daginn þá er ég búin að plana að kaupa hana bara.

Ræktin gengur ágætlega, í seinustu viku tókst mér að mæta alla dagana samviskusamlega og lyfta þrjá af þeim, í þessari viku hefur mér tekist að lyfta tvo og brenna einn, en ekki komist í ræktina í tvo daga.. ef ég gæti sleppt því að sofa þá hefði ég líklega komist.

plan um helgina er að klára heimavinnu.. (skrítið!) og fleiri verkefni og vonandi að slappa aðeins af... ef ég verð dugleg að klára af listanum mínum þá ætti ég að geta það.

toodools


Helgin

er byrjuð hjá mér, byrjaði eiginlega í gær miðað við að ég fékk frí í skólanum. Dagurinn var alveg ágætur, fór í ræktina og tók frekar stutta æfingu reyndar, er ennþá hálf sjúskuð eftir hestaferðina og auðvitað tekur maður eftir því sérstaklega þegar maður fer á lappaæfingu.

fór heim og kláraði að fletta í gegnum eina bók af bókasafninu og það endaði með því að ég sofnaði í nokkra klukkutíma, ég hafði áhyggjur af því að það myndi hafa áhrif á nætursvefninn minn en sem betur fer gerðist það ekki, en mér er búið að takast að sofa í gegnum nóttina án þess að rumska fjórar nætur í röð... afrek!

annars fór gærkvöldið í að horfa örlítið á sjónvarp og borða pizzu með familíunni, og tölvuuppfærslur útí bæ

 

plan dagsins er að vinna í verkefni sem ég er alveg til í að klára en auðvitað verður maður að koma því frá sér vel unnu og ég er líklega að láta smáatriði stoppa mig í því. Einnig er plan að fara upp á skaga í smá stund.

toodools!


Fimmtudagur

og það er eins og ég sé eitthvað að ruglast í dögunum allt í einu.. skrítið!

Jæja þessi dagur fer alveg að verða búin en hann byrjaði alveg vel, allavega tókst mér aðra nóttina í röð að sofa án þess að vera eitthvað að rumska... er ansi ánægð með það bara og ekkert svo oft sem það skeður. Fór í skólann í íslenskutíma þar sem rætt var um giftingarhefðir til forna... spennandi þótt það sé ekki eitthvað sem maður flettir upp svona í frítíma sínum að gamni sínu. Næsti tími fór í áframhald af flúorfyrirlestrinum síðan í gær en mér fannst það frekar mikil endurtekning reyndar, hefði alveg verið til í að hlusta á aspartamfyrirlestur eins og hann talaði um í gær.

Fór svo á bindishnútanámskeið eins og næstum allur skólinn, flestir að hugsa um að komast fyrst í þennan eina atburð sem maður þurfti að klára í dag, þannig ég lærði að gera það... gaman að því, tók ekki bindi með mér þannig ég á eftir að æfa mig.  En .. paying it forward..

 

Einfaldur hnútur

Tvöfaldur hnútur

Eftir þetta tókst mér að setja blessaðan miðann minn í kennarahólfið ómerktan en mér tókst að fá hann aftur til að merkja hann. Lagði svo af stað útí daginn aðeins fyrr en ég hafði áætlað sem var bara plús.

Byrjaði á því að fara á pósthúsið, fór svo og mátaði buxur sem ég ætlaði jafnvel að kaupa, kom við á bókamarkaðinum í perlunni en fann ekki bók sem ég var að leita að en labbaði samt út með tvær, fór í miðbæinn... eitthvað sem ég geri helst aldrei og kom við á tveim stöðum og með tvo hluti fór ég líka heim... en ég ætlaði ekkert að gera það. Ætlaði svo að vera rosa dugleg og fara út að labba en hafði mig ekki í vegna móþróta! fór heim og útkoman var að ég sofnaði í þrjá klukkutíma, þegar ég vaknaði ákvað ég að drífa mig í ræktina í hálftíma svo ég hefði nú aðeins minna samviskubit yfir því að sofna og hef síðan þá verið að gera heimalærdóm.

Ef ég næ að gera allt sem ég planaði í dag þá verða það um 13 atriði, og jafnvel að ég komi fleiru inní daginn eftir það... þá er það bara æðislegt.

best að halda bara áfram


4. mars

dagurinn minn byrjaði nokkuð vel miðað við að ég svaf eins og steinn í nótt... sem var plús. Fór í fyrsta tíma dagsins og þar var fyrirlestur um flúor sem er víst baneitrað efni, en það var svona öðruvísi námsefni miðað við náttúrufræðina.  Næsti tími dagsins var ekki eins spennandi, stærðfræði og líklega eini kennarinn so far á þessum blessuðu þemadögum sem hefur ekki gert neitt öðruvísi í kennslunni þrátt fyrir að flestir kennarar geri eitthvað annað þessa dagana í tímum. Allavega fór tíminn í að bíða eftir að hann yrði búin og við fylgdumst með honum búa til fleygboga í tölvunni... væri gaman að vita í hvað maður á að nota svona fleygboga því ekki sé ég neina einustu þörf fyrir svona í mínu lífi, og sú afsökun um að maður geti notað það í erfiðari áföngum auðvitað gagnast mér ekki baun af því ég ætla ekki að taka mikið meiri stærðfræði.

Anyways! Eftir þennan tíma myndaðist gat hjá mér í deginum þannig ég ákvað að koma við á pósthúsinu og þegar ég labbaði þar inn ákvað ég að fara í ræktina og nýta tímann, því ég sá fram á að ég yrði ansi sjúskuð eftir hestaferðina. Þannig ég skundaði heim og fékk mér próteinsheik!! og fór í ræktina og tók lyftingar, alveg ágætis æfing þar. Fór svo aftur heim og kom mér á staðinn til að fara í hestaferðina, þurfti reyndar að bíða þar í upp undir hálftíma eftir að rútan með liðinu úr skólanum mætti, svo fórum við á bak og ég komst upp á hestinn (Svavar) í fyrstu tilraun, plús fyrir það og ekkert svaka oft sem það skeður. Hann var hvítur og glaseygður, virkaði frekar latur en var samt alveg ágætur. Eins og vanarlega var farið sama leiðin og alltaf því ég hef nú farið á bak þarna áður, svo á sama stað var skipt hópnum upp í hratt/hægt. Ég ákvað að fara í hratt... ekki var farið samt neitt rosalega hratt, á einum stað datt einn af hestinum sínum í hraða hópnum og þegar við mættum hæga hópnum aftur (og þá var ég (og Svavar) auðvitað komin fremst) voru tvær búnar að gefast upp. Restina af leiðinni fóru allir saman þannig að hraðin var ekkert svakalegur, mestmegnis brokk... ái! Ekki nógur hraði fyrir töltið en þó pínu pínu stökk á einstaka stöðum, þeir öftustu hlaupa víst mest því gaurinn sagði mér að þetta væri keðjuverkandi... hestarnir fara auðvitað í keppnisskap og allt það.

Ég íhugaði fyrir ferðina að fara bara í einum jakka, en sem betur fer fór ég í báðum sem ég var með og í buxum innanundir hlífðarbuxunum því þegar við komum til baka var ég orðin frosin! eins og svo margir aðrir, ég fékk ekki tár í augun eins og svo margir en ég hafði vit á því að vera í hönskum auðvitað. Svavar var ekkert svakalega mikið fyrir að spjalla við mig eftir þetta en hann þurfti að pissa alveg heil ósköp. Fékk svo það compliment þegar út var komið frá kennaranum sem var með í för að ég virtist voða "reynd" ... jæja þótt ég eigi ekki hest þá allavega hlýtur eitthvað að koma með æfingunni eins og að fara á hestbak a.m.k. 2x á ári!

Svo kom ég mér heim... þreytt í hnánum og hef síðan ég kom verið að dunda mér við ýmislegt, til dæmis að taka úr og setja í uppþvottavélina, þvo smá þvott og brjóta saman, elda mat og borða, skrifa diska með gögnum, klára stærðfræðipróf, þrífa baðspegilinn, fara smá á facebook og kíkja á bókhaldið, skrifa niður heimanám og svo er plan að klára smá í viðbót og jafnvel planta sér fyrir framan sjónvarpið í smá stund og sauma... annars fer saumaverkefnið mitt að verða búið og þá fer mig að vanta meira af því...annars skrifaði ég líka dans og náði í lög við nýjustu dansana og plan að taka þá upp um helgina jafnvel... kemur í ljós hverju ég nenni! Aðeins of mikið að gera á þessum bæ stundum.

jæja best að halda áfram!

... svo er bindishnútanámskeið á morgun, gaman að sjá hvort mér tekst að læra það


Miðað við hálfgerða munnræpu

undanfarna daga þá hef ég ekki verið nógu dugleg að blogga um það... skrítið! Ætti kannski að bæta úr því, allvega hef ég verið á fullu að blaðra við sjálfa mig og aðra... þarf að ná að róa mig aðeins niður aðeins betur, allavega skiptist á upptjún og rólegheit, frekar skrítið.

sunnudagurinn var ágætur um helgina, fór í ræktina og tók aukadag í brennslu, hafði bara gott af því miðað við að ég fór ekki á föstudaginn, minnir að ég hafi gert eitt heimaverkefni sem ég ætlaði svo að skila af mér á mánudaginn en gott að ég gerði það ekki miðað við að ég fann nokkrar villur í því áðan og ætla að koma því frá mér á morgun. Eyddi sem betur fer ekki deginum í að læra eitthvað sem ég þurfti ekki að læra en mér gekk vel í prófinu í náttúrufræðinni, fékk 8.1 í því prófi.

Vantar ennþá einkunnir úr prófi sem ég tók í seinustu viku, tveimur reyndar. Og í þessari viku eru einskonar þemadagar, í dag var mæting í fyrstu tvo tímana, en ég þurfti bara að mæta í einn því svo var gat hjá mér hvort eð er, tók með mér saumadótið og allt til að hafa eitthvað að gera en gerði ekki eins mikið og ég hefði getað. Þurfti að horfa á íþróttir í klukkutíma og svo kom ég mér í það að borða loksins, var orðin ansi svöng. En fór svo aftur niðrí skóla og ætlaði í blóðþrýstinsmælingu eins og ansi margir aðrir en þá kom í ljós að það fékk enginn miða fyrir það (þurfum að skila límmiðum) nema þeir sem voru að mæla blóðþrýstinginn þannig ég fór í stafsetningarkeppni.

Hef verið að spá í að fara út að labba en er ekki á því miðað við hvað það er ógeðslega kallt, bara -11 stig í morgun, og ég man hvað það var ógeðslega kallt þegar ég labbaði einu sinni í -6 stigum og -10 stigum... helst aldrei aftur takk. En ég fór í ræktina og tók brennslu, greinilega eitthvað að ske í sambandi við það að ég hef ekki borðað nammi í 4 daga, hef verið að hugsa um að taka nammibindindi jafnvel fram í maí en einhvern veginn ekki alveg neglt það niður en samt eiginlega byrjað á því, en allavega finn ég mun á fötunum mínum og sé smá mun á vigtinni, sem er bara plús. Eftir almennilega brennslu varð ég orðin þreytt og hefði alveg getað farið að sofa bara en hékk heima í smá stund og fletti í bók og fór svo í danstíma og tók svaðalegan tíma þar... ansi gaman líka. Hló ansi mikið að sjálfri mér á leiðinni heim... (i wonder why) en kom við í búðinni á leiðinni hef verið að gera smotterí síðan ég kom heim, gæti svosem verið meira en skulum skrifa það á facebook, stelur öllum tíma frá manni bara að kíkja þar inn, en samt gaman að spjalla við fólkið þar auðvitað.

Gærdagurinn var líka fínn þótt hann hafi verið pínu skrítinn... þungur framanaf þangað til ég fór í ræktina til að taka lyftingarnar, auddi og pétur jóhann voru að taka upp þátt ... eða fara að byrja á því þegar ég mætti (veit heldur ekki hvaða þátt), og svo var pétur jóhann við hliðna á mér í upphituninni sem var bara fyndið, svo var ég að taka kálfa fyrir aftan þá í öðru atriði greinilega, en auðvitað veit ég ekkert hvort ég muni eitthvað sjást þar... þannig það er kannski best að fylgjast með á föstudaginn?  fór svo uppá skaga og var þar til næstum miðnættis, varð ansi þreytt á leiðinni heim en var frekar lengi að sofna þrátt fyrir það.

... svo er hestaferð á morgun, víí!

best að fara að tjúna sig niður og fara að lúlla


Laugardagur

ég hef ekkert svakalega mikið verið í tölvunni undanfarna daga nema þá til að kíkja inná facebook... talandi um að hafa ekkert að gera.

föstudagurinn varð ekki alveg eins og ég hafið planað hann, ákvað að sleppa því að fara í seinasta tímann í skólanum, stærðfræði... einfaldlega af því ég nennti ekki að sitja þar og bíða í klukkutíma, hef ekkert verið að gera í stærðfræðitímum í um viku og plan að hitta aukakennarann í þarnæstu viku.  Ætlaði samt að vera rosa dugleg og fara heim og læra smá sem ég vildi klára sem fyrst svo það yrði bara búið en útkoman varð að ég hætti við að taka brennslu einfaldlega af því mig langaði ekki í ræktina og ég fór bara heim að sofa og sofnaði í næstum þrjá tíma, þannig ég hef greinilega þurft á því að sofa aðeins.

Fór í pizzukvikindi með familíunni en biðin eftir því varð um klukkutími, vegna ofpantana greinilega. Fór svo heim og leit í tvær bækur áður en ég fór að sofa... tókst svo að dreyma eitthvað furðulega þannig ég vaknaði eftir tveggja tíma svefn en sofnaði svo aftur fljótlega eftir það.

hef það sem af er dags náð að klára eina skýrslu fyrir náttúrufræði sem á reyndar ekki að skila fyrr en í þarnæstu viku en ég vil bara klára hana og þá ekkert meira hugsað um það. plan að læra fyrir próf sem verður á mánudaginn á morgun bara, þarf að fá á hreint skiptingar á frumum, meiósu og míósu. Annars gekk vel í prófinu á föstudaginn... en leiðist frekar að fá ekki til baka einkunnir fyrir þau verkefni sem ég hef gert í þeim áfanga.

er að pæla í að taka nammibindindi fram í maí... en eitthvað í mér er með svaka mótþróa við það þannig það segir mér bara að ég ætti að hafa gott af því og koma sterkari útúr því fyrir vikið. Kemur í ljós... en eins og staðan er á þessu augnabliki held ég að ég myndi fyrst fá mér eitthvað nammi sem mig langar í og byrja svo. Sjáum til havð skeður

best að fara að njóta helgarinnar, annarsstaðar en fyrir framan tölvuna!


fimmtudagur

og hérna er nóg að gera eins og hefur verið undanfarna mánuði. Segjum bara að allt gangi vel og það virðist líka gera það þannig ég hef ekki yfir neinu að kvarta.

Dagurinn í dag hefur verið ágætur, fékk frí í fyrsta tímanum þannig ég gat sofið aðeins lengur sem var líka fínt, fyrsti tíminn fór í lítið sem ekkert nema skrifa upp glósur fyrir próf sem verður á morgun og gekk það ágætlega, fór í gat og hafði eiginlega ekki alveg nóg að gera þannig ég fór á facebook í smá stund, fór í næsta tíma eftir það og lærði um nautaat en það var einhver leti við að fara í tímann, svo kom annað gat og þá greindi ég frá seinustu bókinni í einum áfanga þannig ég er búin með hann... JEYYY!! Fór svo í seinasta tíma dagsins eftir að hafa komið við á bókasafninu og tekið með tvær bækur heim sem ég ætla í gamni að fletta.

Fór svo í ræktina eftir að leyfa mér að liggja kyrr í rúminu í hálftíma sem ég hafði bara gott af, tjúnaðist eitthvað upp í ræktinni en náði að slaka aftur, tókst að gleyma íþróttabuxunum heima þannig ég afrekaði að taka brennslu í gallabuxunum... bara fyndið en allt í lagi samt!

Fór heim og borðaði aðeins og ákvað svo að ráðast á nokkur verkefni, á 2-3 tímum náði ég að þvo og þurrka þvott, setja og taka úr uppþvottavélinni, læra reikistjörnur í réttri röð og fara yfir efni til prófs á morgun og auðvitað ákveð ég það bara hér og nú að ég muni ná þessu því ég virðist muna megnið af efninu sem ég hef verið að glósa. Þreif eldhúsborðið, braut saman þvott tvisvar sinnum, fór í bað, eldaði meiri mat og gekk frá honum fyrir skólann og vann í þvottakonuverkefninu aðeins, fór á facebook og sendi tölvupóst... þannig ég hef gert slatta, en útkoman er reyndar sú að ég fékk hausverk!

jæja best að fara og sauma í smá stund og fara svo að sofa

 


miðjuvikudagur

alveg ágætur dagur í dag, fór í skólann og fyrsti tíminn fór í að klára smá heimavinnu fyrir prófið á föstudaginn, næsti tími fór í eiginlega ekkert því ég er ekki á því að halda áfram í stærðfræðinni eins og er, kennarinn eitthvað að stuða mig og ég held ég seti þetta bara í hendurnar á aukakennaranum.

fór í gat og skrapp á bókasafnið og las smá og hélt áfram með verkefnið mitt, og auðvitað facebook surf í smá stund

fór í spænsku, fékk 8.5 á hlustunarprófinu... er alveg ánægð með það, og auðvitað kom strokleðrið mitt í leitirnar, sú sem situr við hliðina á mér tók það þegar ég var farin, fór svo í næstum tveggja tíma gat og ég ákvað að fara heim og sauma í smá tíma og svo fór ég í seinasta tímann sem var í alveg hálftíma... vorum að flokka perlur en ég held ég hafi alveg skilið þetta, svo þarf að gera skýrslu um þetta.

Kom við heima og fór í ræktina og tók lyftingar... langaði ekkert svakalega að fara en ákvað að drullast samt af stað því ef ég hefði ekki farið þá hefði ég líklega bara séð eftir því og látið það bögga mig. Hef síðan þá verið heima að horfa á sjónvarpið, spjalla við fuglana, borða mat og hanga á facebook... næsta mál á dagskrá er að sauma svolítið meira. Svo er frí í fyrsta tímanum á morgun þannig það er bara nice

toodools


24.febrúar

hef lítið verið að hanga í tölvunni undanfarið. Dagurinn í gær fór eiginlega bara í skólann en ég losnaði við seinasta tímann sem betur fer, fór svo í ræktina eftir það í smá stund og kom mér svo heim, setti mér það markmið að fara snemma í rúmið sem virkaði... næstum því en ég sofnaði samt ekki fyrr en a.m.k. þrem tímum seinna... þannig það gekk ekki vel.

fór í skólann í dag, hefði alveg verið til í að lúra bara lengur ... auðvitað. Losaði mig við stærðfræðiverkefni í tímanum, en hef lítið verið að hlusta á kennarann þar .. veit ekki af hverju en svona er það bara. Kláraði svo heimaverkefni fyrir spænsku í gatinu eftir það og svo var hlustunarpróf í tímanum, tókst að gleyma strokleðrinu mínu en eftir tímann sem var þar á eftir fór ég og ætlaði að ná í það en einhver hefur greinilega stolið því af mér, það fór eitthvað að trufla mig

fékk 8.4 í skilaverkefni í náttúrufræði... smá ruglingur í einni spurningu en samt er ég alveg sátt. Held líka að það hafi bara gengið vel í íslenskuprófinu sem ég fór í í gærdag en einkuninn er ekki kominn og í dag fengum við að vita að við fáum frí í íslensku á fimmtudaginn í staðinn fyrir þá sem þurfa að mæta í prófið... eða sjúkapróf.

Fór svo í ræktina í brennslu í hálftíma og dreif mig heim, kom við heima hjá mömmu í baunasúpu og fór svo í danstíma þar sem ég lærði nýjan dans... sem ég man ekki alveg núna miðað við að ég hef ekki skrifað hann niður.

Á sunnudaginn bakaði ég brauð og setti krem á köku, setti í þvottavélina nokkrum sinnum og uppþvottavélina, moppaði gólfin og braut saman þvott þannig ég hafði allavega eitthvað að gera.

losnaði við eitt próf sem átti að vera á föstudaginn þannig ég fer bara í eitt í staðinn og þá annað á mánudaginn, þyrfti að ná þeim báðum. Þemadagarnir í skólanum í næstu viku og ég fer í hestaferð á miðvikudeginum... hlakkar nú bara aðeins til miðað við að ég hef ekki farið á hestbak síðan um verslunarmannahelgina

.. jæja meira seinna


helgin

hálfnuð og ég hef verið ansi löt seinustu tvo dagana... tók frí eitt kvöld og fór ekki í ræktina í tvo daga... ætlaði að fara annan daginn en tókst það ekki af því of mikill tími en ég ætlaði mér fór í eitt verkefni.

pizza búin að vera í uppáhaldi undanfarið... en samt hef ég ekkert þyngst eða neitt þannig.

hef lítið gefið mér tíma í tölvuna og ætlaði mér að lesa slatta í dag en hef ekki nennt því heldur, svo eru þrjú próf í næstu viku... plan að læra fyrir þau auðvitað.

eitthvað lítið að segja akkúrat núna, annars er ég að glápa á upptöku af csi...

toodools


fimmtudagur

og ég er að verða hálf rugluð í dögunum og ég mætti alveg sofa örlítið meira.

fór í skólann og var frekar mygluð... fór aðeins of seint að sofa en ég ætlaði mér en afrekaði alveg slatta af dóti bara í gær þannig það var allt í lagi. Fyrstu tíminn fór í að hlusta á jarðfræðifyrirlestur um hafið, ansi margir steinsofandi í tímanum og það var stundum hálf freystandi að loka augunum. Næsti tími átti að vera stærðfræði en það fóru allir eftir að vera búnir að bíða í korter eftir kennaranum sem mætti svo eftir það af því hann gleymdi að tíminn átti að byrja á sínum tíma og hélt hann ætti að byrja tíu mínutum seinna.. þannig allir fengu frí í stærðfræði, gott, var ekki í stuði fyrir hana hvort eð er.

eftir stærðfræðitímann átti að koma gat þannig ég var í skólanum að gera lítið nema lesa í rúmlega einn og hálfann tíma á bókasafninu, var í því að fletta yfir það sem ég er búin að lesa í bókinni sem ég gaf í jólagjöf og hef ekki ennþá náð að klára en fæ að gera grein fyrir henni fyrir íslenskuna þannig það hjálpar til við það. Verður þetta seinasta bókin sem ég les fyrir þennan áfanga og þá verður hann búinn.

Fór svo í spænskutíma þar sem ég komst að því að ég gleymdi að læra heima fyrir þann áfanga, hafði ekki vit á því að athuga heimavinnuna á netinu og okkur var ekki sagt hvað ætti að gera heima í tímanum. allavega heyrði ég það ekki. Fór svo í röð og skráði mig í hestaferðina á árdögunum, en þarf víst að borga strax þannig ég verð að gera það á morgun af því ég var ekki að taka neinn pening með, þaut svo á örnámskeið í tilfinningum og sjálfsöryggi... lærði ekkert nýtt þar en það var gaman að sjá hvað var komið með. og svo var ég búin í skólanum af því seinasti tíminn minn féll niður þannig ég dreif mig heim og borðaði aðeins og fór í ræktina að lyfta aðeins. Náði enn og aftur að taka æfinguna á klukkutíma en gleymdi reyndar magaæfingunum, en ég man víst ekki allt.

næsta mál á dagskrá er að klára spænskuverkefni sem ég þarf að skila aftur því við vorum ekki búin að fá alveg allar leiðbeiningarnar fyrir það og svo ennþá meiri spænsku og svo getur verið að ég drífi mig í að halda áfram með bókina eða ég leyfi mér að sauma eða vinna í öðru verkefni, kemur allt í ljós.

annars var danstíminn í gær ansi góður, mikið af dönsum og maður svitnaði almennilega sem bætti það upp að ég fór ekki í ræktina.

best að henda sér í verkefnin


Mánudagur

og febrúar alveg að verða búin...

tókst að vera í fríi um helgina frá heimalærdóminum en byrjaði samt á einni bók sem þurfti að klára fyrir fimmtudaginn, hef verið að klára verkefni fram í tímann og það virðist hjálpa svolítið því núna hef ég eiginlega engan heimalærdóm fyrir vikuna.

Annars þarf ég að fara í þrjú próf í næstu viku, allir kennararnir taka upp á þessu fyrir "áradagana" en árdagar eru þrír dagar þar sem verður gert eitthvað annað en að læra... t.d. heyrði ég af hestaferð einn daginn og plan að kíkja jafnvel á það en dagskrá og skráning er ekki alveg komin.

dagurinn í dag líka þétt setinn, gleymdi einu sem ég ætlaði að gera t.d. en tókst að fara í ræktina sem mér tókst ekki fyrir helgina alveg heila tvo daga sem ég missti úr þar vegna heimalærdóms... tókst að fá annars 6.9 á söguprófinu sem ég fór í um daginn og ég er barasta sátt við það.

annars er ég að fara uppá skaga... toodools!


valentínusardagurinn

í dag laugardag, hvað ætli seljist mikið af súkkulaði og blómum ??

föstudagurinn var fínn hjá mér, slapp við fyrsta tíma af skólanum sem auðvitað stytti daginn minn og ég svaf aðeins lengur en auðvitað tókst mér að vakna á svipuðum tíma... svona er það þegar líkaminn venst á einhverja reglu.

fór í einn tíma og þurfti svo að fara í minn næstum daglega göngutúr í aðra stofu þar sem við horfðum á þátt af planet earth... verst að það var á íslensku tali, annars var það fínt því ég hef aldrei séð þessa þætti.

fór svo beint í sögupróf, tókst ekki að finna tíma til að lesa fyrir það af því fimmtudagskvöldið fór í annan lærdóm. En ég held bara að mér hafi gengið ágætlega, hefði getað verið verra alveg örugglega. Slatti af krossum sem ég dreif af, giskaði á sumt (þar sem reyndar var erfitt að greina á milli)... tók þetta samt ekki eftir röð heldur svona hvað man ég best og kláraði það fyrst. um 2 ritgerðaspurningar, ein bara um eitt efni og hin þar sem maður þurfti að velja 4 efni af 5 og greina stuttlega frá

svo tók við stærðfræðitími en ég er víst komin eitthvað á undan þar sem er skrítið miðað við að mér fannst ég vera að dragast afturúr í byrjun vikunnar. Greinilega hjálpaði mér að fara í stærðfræðiverið og læra rétta formúlu til að glíma við dæmin, fyrsta formúlan sem kennarinn minn kenndi okkur var víst eitthvað sem ég átti bara að gleyma... og kennarinn sagði í dag að hún yrði ekki meira notuð þannig ég skil ekkert í því hvað hann er að eyða tíma í að kenna okkur eitthvað sem við notum ekki.  Tók kaflapróf úr seinasta kafla... sem ég var eiginlega búin að gleyma efninu úr og tókst að fá heila 2...  miðað við að það eru 8 kaflar í bókinni finnst mér að það ætti að skipta upp í tvennt og taka lokapróf úr fyrstu 4 köflunum og svo seinna lokapróf í lok annar úr seinustu 4 köflunum. Annars gleymir maður þessu bara og það er byrjað hjá mér og fleirum.  Allavega hjálpaði mér það í seinasta stærðfræðiáfanga að láta þetta vera svona skipt upp. En nóg um stærðfræði... ekki uppáhaldið.

fór á nings í dag... mmmm! borðaði smá nammi, en ég hef verið léleg við að ákveða einhverja loka dagsetningu ef ég ætla mér að byrja á nýju nammibindindi, annars gengur bara vel að halda sig frá því en það kemur fyrir að sætutilfinning er gjörsamlega að gera mig brjál! Er búin að redda próteinstöngum frá herbalife... þær eru alveg ágætar en ég get ekki bara borðað þær. Finnst mataræðið mitt þessa dagana frekar einhæft, en það getur alveg verið vitleysa.

Plantaði mér fyrir framan tölvuna í nokkra klukkutíma og borðaði svo pizzu með familíunni eins og vanarlega, eftir það hefði ég alveg getað farið beint að sofa en ég fór á ball með klaufunum og það var bara gaman, allavega var mér illt í fótunum eftir það... klaufarnir voru reyndar ekki nema í bláenda. Það eina sem hefði mátt sleppa var að hleypa almenningi inná staðinn, frekar leiðinlegt þegar fullt fólk er að reyna að dansa og er að þvælast fyrir

vonandi njótiði valentínusardagsins og helgarinnar allrar. 

Sleeping

 


Fimmtudagur

og alveg nóg að gera í skólanum, hef lítið verið í tölvunni nema til að gera verkefni fyrir hina ýmsu áfanga... gærkvöldið fór alveg í það en það hafði þær afleiðingar að ég þarf ekki að liggja yfir því verkefni um helgina.

í dag hefur verið unnið í verkefninu um þvottalaugarnar, gengur barasta ágætlega.

annars er voðalega lítið að frétta héðan... frekar einhæft og boring


vika 6

í skólanum það er að segja og 12 vikur eftir... ég hlakka ansi mikið til þangað til það skeður að prófum verður lokið (auðvitað með því að ná öllu) og svo byrjar sumarið... weird að vilja vera þar en svona er þetta bara eins og er.

vaknaði aðeins fyrr en ég ætlaði mér en náði að kúra lengur í rúminu mínu þangað til ég þurfti að vakna, fattaði þá hvað ég er ógeðslega þreytt eitthvað, sérstaklega í vöðvunum. Held bara að ég hafi aldrei á ævinni verið svona þreytt eins og ég er þessa dagana. Eftir slatta af cheeriosi í morgunmat fór ég í skólann og fór í spænskutíma og fékk að vita að einkuninn mín var 6.9, en sá svo að kennarinn hafði gleymt að telja við einn lið þannig útkomann varð endanlega 7.8... sá reyndar nokkrar "flýtivillur" sem ég var búin að læra en eitthvað að drífa mig í prófinu greinilega og hefði alveg getað fengið hærra s.s. anyways, get ekki annað en verið sátt við þetta, eitthvað um 5 manns sem náði prófinu í hópnum og hæðsta einkunn var 9 minnir mig.

fór í gat og plantaði mér fyrir framan dagsljósabirtulampa á bókasafninu í ca hálftíma... held það hafi barasta hjálpað mér með restina af deginum allavega var ég ekki eitthvað svaka þreytt. Var að lesa bókina fyrir íslensku, hún er bara um 140 blaðsíður en letrið er pínu lítið og efnið ekkert svaka spennandi það er kannski þess vegna sem mér gengur eitthvað illa að koma mér í gegnum hana ... og auðvitað það að ég hef ekki lesið hana áður. Á svo eftir tvær bækur í viðbót í þessum áfanga og má ekki gera grein fyrir fleiri en einni í einu þannig ég verð að bíða næstu þrjár vikurnar þangað til ég klára hann.

Fór í náttúrufræði og byrjað var á dna kafla í dag... plan að byrja að lesa kaflann svo í kvöld, virkar pínu flókið svona til að byrja með en það kemur alveg örugglega með tíð og tíma.

Eyddi hádeginu í það að borða mat... ótrúlegt en satt en ég er eitthvað búin að vera léleg við að gefa mér tíma til þess í skólanum því ég hef bara verið að hugsa um að klára heimavinnuna sem sett er fyrir svo ég losni við hana sem fyrst. Í sögutíma var haldið áfram með íslam kaflann sem við erum í og í íslensku var haldið áfram með efnið þar, reyndar fór að rugla mig aðeins því kennarinn breytti um útskýringar aðferði... mér finnst betra að sjá efnið fyrir mér en hann er í því að breyta orðaröðinni á texta sem við erum að fara í.

Seinasti tíminn fór í jarðfræði, glósaði alveg rúmlega eitt blað um veðurfar og þ.h. efni sem við þurfum að læra fyrir próf og fattaði það að ég var ekki búin að prenta út glósur né lesa kaflann fyrir tímann...ekki eins og ég hafi tíma í allt þessa dagana.

Fór í tvær búðir á heimleiðinni, góðverk dagsins var að gefa hröfnunum sviðakjamma... say no more! og svo fór ég beint í ræktina og tók lappaæfingu... alveg ágætis æfing og ég náði að koma mér heim eftir klukkutíma og korter, var allavega ekkert að hangsa við þetta og dauðþreytt í fótunum auðvitað.

Kvöldmaturinn búin og næsta mál er auðvitað heimavinna.. en ekki hvað ??


sunnudagur

og helgin á enda...    dagurinn minn byrjaði snemma, hefði samt alveg verið til í að sofa aðeins lengur. Fór svo í tölvuna fyrir rest og var í henni megnið af deginum, held ég fari bráðum að skjóta rótum... og er eiginlega búin að fá nóg af henni í bili, en hef verið að vinna í einu verkefni sem tengist a.m.k. ekki skólanum.  Fór svo í mat með familíunni og síðan þá hef ég verið að leita að myndum fyrir þvottakonuverkefnið og gengið ágætlega að finna það

best að koma sér í rúmið bara


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband